Leiðbeiningar og upplýsingar fyrir bílrafgeyma
1. Varúðarráðstafanir og grundvallarmeðhöndlun
(1) Notkunaraðstæður
Notið rafgeymi af réttri stærð og af réttum frammistöðustaðal fyrir ökutækið. Notkun á vitlausum rafgeymi getur valdið innri skemmdum eða brestum (spreningu) vegna flæðis á of háum rafstraumi.
Rafgeyminn er hægt að nota stöðugt við umhverfishita frá -15℃ til 60℃ eða þá er hægt að nota hann í stuttan tíma (tvo til þrjá tíma) á umhverfishita frá -30℃ til 75℃. Að nota eða geyma rafgeyminn úti við heitari eða kaldari aðstæður getur valdið ofhitunn eða frosti í rafvökvanum og leitt til skemmda og aflögunar.
(2) Viðvaranir varðandi notkun á rafgeymi
Notið ekki né hlaðið rafgeyminn þegar rafvökvastigið í rafgeyminum er lágt. Notið heldur ekki né hlaðið rafgeyminn ef af honum er lykt sem ekki er eðlileg þegar hann er notaður eða ef rafvökvinn minnkar óeðlilega hratt (ef þarf að bæta við vatni einu sinni í mánuði). Að gera það getur valdið brestum (sprengingu). Einnig er hætta á að hann gefi frá sér hættulegt gas.
Ef rafvökvinn lekur vegna þess að rafgeyminum var hallað óvart eða hann skemmdist er hægt að draga úr áhrifunum með efnum svo sem natríum bíkarbónati (þangað til loftbólurnar hætta) þvoið síðan með miklu vatni. Ef það er ekki gert getur lekinn valdið tæringu eða mengun.
Rafgeymirinn er þungur. Haldið undir rafgeyminn eða á miðjum handföngunum, ef hann hefur þau, þegar hann er borinn og gangið úr skugga um að rafgeymirinn halli ekki. Sveiflið ekki rafgeyminum með handföngunum. Ef það er gert er hætta á að handföngin losni eða að rafgeymirinn detti sem getur leitt til meiðsla.
Notið ekki rafgeymirinn ef það eru einhver sjáanleg vandamál, svo sem sprungur, brestir, skarð, leki, eða óeðlileg aflögun.
Fylgið alltaf leiðbeiningunum í þessum leiðarvísi þegar notaður rafgeymir er höndlaður, þar sem hann hefur enn raforku.
Takið ekki í sundur, breytið eða eyðileggið rafgeyminn. Að gera það getur valdið leka í rafgeyminum eða sprengingu.
Notið aðeins hreinsað vatn þegar vatni er bætt á rafgeyminn. Að nota óhreinsað vatn getur valdið ofhitun eða losun á hættulegu gasi vegna óhreininda í vatninu og það styttir lífslengd rafgeymisins. Bætið ekki við vatni með mælinn fjarlægðan (útbúnaður til að sýna hleðslustöðu og rafvökvastig) ef rafgeymirinn hefur hann.
Rafgeymirinn afhleðst smám saman vegna sjálflosunar. Ef ökutækið verður ekki notað lengi, fylgið þá verklaginu í „3.(2) Að fjarlægja rafgeyminn“ til að fjarlægja rafgeyminn úr ökutækinu, geymið hann síðan í vel staðsettan í loftræstu herbergi innanhús þar sem hann verður ekki fyrir opnum eldi.
Mælt er með að aftengja kaplana í kaplahúsinu í ökutækinu frá mínúspólnum á rafgeyminum ef hann á að geyma í ökutækinu.
Þegar skipta á um eða rafgeymirinn er athugaður, slökkvið þá á vélinni, fjarlægið lykilinn og svissið af ljós og annan útbúnað.
Hvít syrja eða spansgræna kann að myndast vegna rafvökvans á rafgeyminum en þetta er ekki gæðavandamál.
2. Geymsla á rafgeymi fyrir ísetningu í ökutæki
Höndlaðu rafgeymirinn á eftirfarandi hátt þegar hann er geymdur.
i. Geymdu rafgeyminn á vel loftræstum stað þar sem hann verður ekki fyrir opnum eldi.
ii. Geymið rafgeyminn þar sem ekki rignir, er dögg, eða beint sólarljós, þar sem ekki er nein hætta á vatni eða flóðum.
iii. Geymið rafgeyminn á stað sem ekki verður of heitur eða rakur.
iv. Geymið rafgeyminn þannig að hann sé ekki á hlið eða hallar.
v. Geymið rafgeyminn þar sem hann dettur ekki niður auðveldlega og ekkert dettur á hann.
vi. Geymið rafgeyminn á stað sem ekki hefur út- eða innstreymi hættulegra gastegunda, smádropa eða ryk.
vii. Geymið rafgeyminn þar sem hann kemur ekki nálægt efnum svo sem mjúkum plastefnum (PVC) þar á meðal þjálniefnum.
Rafgeymirinn afhleðst smám saman vegna sjálflosunar. Þegar geyma á rafgeyminn lengi hlaðið hann eins og bent er á í 5.(1) fyrir notkun.
3. Skipti á rafgeymi
(1) Viðvaranir við skipti á rafgeymi
Þegar skipt er um rafgeymi gangið úr skugga um að fylgja leiðbeiningunum í leiðarvísi og þjónustuhandbók ökutækisins.
Fyrir ökutæki með útblástursrör tengt við uppsettan rafgeymi þarf rafgeymi með uppbyggingu fyrir heildarútblástur. Það þarf að setja upp sérstaka rafgeyma í þannig ökutæki annars getur vetni komið inn í ökutækið og valdið sprengingu vegna ytri kveikju. Hættulegt gas getur komið inn í ökutækið.
*Að setja upp lokuna fyrir loftopið
Ef lokan fyrir loftopið fylgir með rafgeyminum setjið þá lokuna vel á loftopið með útblástursrörinu og loftopið hinum megin. Ef lokan fyrir loftopið fylgir ekki með rafgeyminum, fjarlægið þá lokuna sem er þegar á rafgeyminum sem var í fyrir og setjið hana á rafgeyminn sem settur er í, eða biðjið söluaðila fyrir rafgeyminn um aðstoð. Ef útblástursrör er ekki tengt frá ökutækinu til rafgeymisins er ekki nauðsynlegt að hafa loku fyrir loftopið.
Veljið rafgeymi með plús- og mínuspól í sömu stöðu. Ef rafgeymir með pólunum öfugum er sett í stað þess gamla verður óeðlilegt álag á kaplinum við ökutækið og þá skemmist kapallinn.
Ef tveir rafgeymar eru til staðar, skiptu þá um báða með tveimur rafgeymum af sömu tegund. Ef þú setur í ólíka rafgeyma eða hefur rafgeyma sem hafa verið notaðir mislengi í sama ökutæki verður frammistaðan ójöfn og lífslengd rafgeymanna verður styttri.
Þegar kapaltengi eru sett á rafgeyminn næst ökutækinu snúið ekki við plústenginu og mínustenginu. Notið heldur ekki tengikapal sem er slitin eða jaskaður.
Ekki hylja loftopin á loftunartappa rafgeymisins.
Ekki tengja raftæki beint við rafgeyminn.
Festið rafgeyminn með umgjörðarfestingu.
Að fjarlægja rafgeyminn í ökutækjum sem hafa raftæki með minniseiginleikum getur valdið því að minnið eyðist svo gangið úr skugga um að lesa leiðbeiningar í handbók ökutækisins.
(2) Að fjarlægja rafgeyminn
Aftengið mínustengið fyrst. Aftengið síðan plústengið.
Losið rafgeyminn úr umgjarðarfestingunni, fjarlægið síðan rafgeyminn.
Ef kapaltengin eru tærð hreinsið þau þá með vírbursta eða sandpappír.
(3) Að setja rafgeymi í
Setjið nýja rafgeyminn í sömu stöðu og sá gamli hafði og festið umgjarðarfestingarnar svo að rafgeymirinn vaggi ekki. Ef rafgeymirinn hefur handföng fylgið þá leiðbeiningunum að neðan.
Ef rafgeymirinn er af stærð B eða af stærð D JIS tegund, fjarlægið þá handföngin. Handföngin kunna að rekast á við umgjarðarfestingarnar. Það kann einnig að losna þegar ökutækið er á ferð.
Ef rafgeymirinn er af stærð E, stærð F, stærð G eða stærð H JIS tegund eða af EN gerð þá er handfangið hannað svo það hafi ekki áhrif á umgjarðarfestingarnar eða svo það eigi ekki að fjarlægja, þá er hægt að setja rafgeyminn í án þess að fjarlægja handfangið.
Tengið plústengið fyrst. Tengið svo mínústengið. Herðið tengin svo að þau losni ekki.
Til að koma í veg fyrir tæringu er hægt að smyrja málmhlutina á tengjunum með feiti.
Ef tengishlíf eða hitahlíf var til staðar setjið þær aftur á eftir að skipt hefur verið um rafgeymi.
4. Skoðun og viðhald á rafgeymi
(1) Viðvaranir varðandi skoðun og viðhald á rafgeymi
Athugið rafvökvahæð rafgeymisins reglulega. Athugið hana að minnsta kosti mánaðarlega.
Hreinsið rafgeyminn með klút sem er vættur með vatni. Að hreinsa hann með þurrum klút getur myndað stöðurafmagn.
Hreinsið ekki rafgeyminn með lífrænum leysiefnum eins og bensóli, þynni eða bensíni, hreinsiefni eða kemískum tuskum. Efni eins og lífræn leysiefni geta skemmt rafgeyminn og valdið leka.
(2) Aðferð við skoðun og viðhald á rafgeymi
i. Athugið ytra borð hans, umgjörðarfestingu, kaplatengi, og tengikapla
Athugið ytra borð hans, skoðið hvort umgjörðarfestingin eða kaplatengin eru laus og athugið hvort eitthvað vandamál er með tengikaplana.
ii. Athuga rafvökvahæð og bæta við vatni
[Gerð A] Skoðið rafvökvahæðina á hliðinni á rafgeyminum (þegar loftunartappi er til staðar)
Hreinsið svæðið við línuna sem sýnir rafvökvahæð með klút sem hefur verið vættur með vatni og gangið úr skugga um að rafvökvahæðin sé á milli efri línunnar og neðri línunnar. Ef rafvökvahæðin er nær neðri línunni en þeirri hærri bætið þá við hreinsuðu vatni þangað til vökvin nær efri línunni. Bætið ekki við of miklu hreinsuðu vatni. Ef farið er yfir efri línuna getur rafvökvinn lekið og valdið skemmdum á ökutækinu. Gerð A rafgeymar geta haft mæli (mælistiku sem sýnir hleðslu ástand og rafvökvahæð) en mælirinn gefur aðeins til kynna ástand rafgeymisins út í frá dæmigerðri rafhlöðueiningu svo notið hann bara sem leiðarvísi.
[Gerð B] Þegar ekki er hægt að athuga rafvökvahæðina frá hlið rafgeymisins (þegar loftunartappi er ekki til staðar)
Rafvökvahæð rafgeyma af gerð B er ekki hægt að sjá frá hliðinni svo notið mælirinn við skoðun. Mælirinn í gerð B rafgeymum segir til þegar skipta þarf út rafgeymi, skiptið þá um
rafgeymi um leið þar sem ekki er hægt að bæta við vatni. Ef ekki er hægt að skoða mælirinn, skiptið þá um rafgeymi eða hafið samband við söluaðila þar sem rafgeymirinn var keyptur.

iii. Að hreinsa rafgeyminn
Hreinsið rafgeyminn með klút sem er vættur með vatni. Skoðið loftopin á loftunartappanum, ef þau eru stífluð með leðju eða öðrum efnum þvoið þá loftunartappann með vatni til að fjarlægja stífluna.
Notkun á rafgeymum með loftopið stíflað getur valdið því að innri þrýstingurinn eykst vegna gass sem myndast frá rafgeyminum og leiðir til að rafgeymirinn springur.
5. Að eyga við úrhleðslu rafgeymis
Ef þú gleymir að slökkva á ljósum ökutækisins eða ef ökutækið var látið standa í lengri tíma getur það valdið úrhleðslu á rafgeyminum og valdið því að vélin startar ekki. Hlaðið þá rafgeymirinn með hleðslutæki. Í neyðartilfellum er hægt að fá ræsihjálp af aðstoðarbifreið.
Burtséð frá ofangreindu á að hlaða rafgeyminn þegar rafgeymisspennan er 12,5V eða lægri eða eðlisþyngd rafvökvans er 1,240 (við 20℃) eða lægri.
(1) Að hlaða rafgeyminn með hleðslutæki
i. Viðvaranir
Gangið úr skugga um að fylgja leiðarvísi hleðslutækisins Þegar rafgeymirinn er hlaðinn með hleðslutæki.
Forðist að hlaða rafgeymirinn þegar hann er í bílnum þar sem það getur valdið kviknun og sprengingu eða skemmdum á ökutækinu.
Fjarlægið aldrei hleðsluklemmurnar á meðan á hleðslu stendur.
Skoðið hæð rafvökvans eins og stendur í 4.(2).ii áður en rafgeymirinn er hlaðinn. Ef hæð rafvökvans er ekki rétt bætið þá við vatni og hlaðið rafgeyminn ef rafgeymirinn er af gerð A, eða skiptið um rafgeymi án þess að hlaða ef rafgeymirinn er af gerð B, þar sem ekki er hægt að bæta við vatni. Athugið einnig rafvökva hæðina og gerið aðrar nauðsynlegar ráðstafanir eftir hleðslu.
Gangið úr skugga um að hiti rafvökvans sé 45℃ eða lægri á meðan á hleðslu stendur.
Fjarlægið loftunartappann ef hægt er til að ganga úr skugga um að gas komist frá rafgeyminum á meðan á hleðslu stendur. Gangið einnig úr skugga um að nóg loftræsting sé á staðnum.
ii. Hleðsluaðferð
Fylgið réttu verklagi þegar rafgeymirinn er hlaðinn, sem lesa má í leiðarvísi sem kemur með hleðslutækinu.
Tengið plúshleðsluklemmuna við plúspólinn á rafgeyminum, síðan mínúshleðsluklemmuna við mínúspólinn á rafgeyminum. Að snúa röðinni við eða að tengja pólana afturábak getur valdið kviknun og sprengingu eða skemmdum á ökutækinu.
Gangið úr skugga um að hleðslustraumurinn sé lægri en 1/10 af getu rafgeymisins. Hlaðið ekki með straumi sem er hærra en þetta gildi.
Hleðslan tekur 5 til 10 tíma, þegar mikið magn af gasi hefur komið frá einingum rafgeymisins. Ef þú átt voltamælir og flotmæli gangið þá úr skugga um að tengispennan sé 15,0V eða hærri á meðan á hleðslu stendur og að eðlisþyngd rafvökvans sé 1,270 (við 20℃) eða hærri.
Herðið loftunartappann tryggilega eftir að hleðslu er lokið.
(2) Ræsihjálp með aðstoðarbifreið
Fara verður eftir réttu verklagi þegar notaðir eru startkaplar til að fá ræsihjálp af aðstoðarbifreið. Lesið handbók ökutækisins. Vitlaust verklag getur valdið kviknun og sprengingu.
Gangið úr skugga um að rafgeymir aðstoðarbifreiðarinnar sé með sömu spennu (12V eða 24V) og hafi sömu frammistöðuafköst og ökutækið.
Eftir að vélinni hefur verið komið í gang óskið þá eftir skoðun á bensínstöð, hjá söluaðilanum þar sem rafgeymirinn var keyptur eða á bílaverkstæði.
AKS Bygging 3 Kanda Neribeicho, Chiyoda-ku, Tokýó 101-0022, Japan
https://www.energy-with.com/en/